fimmtudagur, nóvember 24, 2005

Þekkirðu Hugleik #4

Fótafetish er áberandi í verkum hugleiks. Í hvaða verkum koma eftirtaldar línur fyrir:


Ég nýt ylsins við hans ástarhót er undurblítt hann gælir við minn fót.

Víst tók hann Þorbjörn mér um ökkla eitt sinn.

Þú snertir á mér fótinn á alveg sérstaklega sérstakan hátt.

Saman með hnén Lína mína.


Aukaspurning: Nefnið eitt dæmi til viðbótar um fótaduld Hugleiks.

14 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Sagan af Sveini sáluga í Spjör og samsveitunga hans
Stútungasaga
Jólaævintýri Hugleix
Kramið hjarta


Fótur minn er fastur en fljúga vill önd - Fermingabarnamótið

12:13 e.h.  
Blogger Varríus sagði...

Sumt rétt, hjá Fríðu, annað hreint ekki.

Getum, getum...

12:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það fyrsta er úr söng snyrtibúðareigandans í Aldrei fer ég suður. Texti eftir Hjördísi H. Hjartardóttur fótafíkil númer eitt.

Önnur setningin er úr munni Jórunnar í Stútungasögu ... og svei mér þá ef hún er ekki einnig sprottin úr sjúkum hugarheimi téðrar Hjördísar.

Verð að játa mig lens með hinar tvær.

12:15 e.h.  
Blogger Varríus sagði...

Og nú verður sævar að auka leti mína og grafa upp úr ensíklópedísku textaminni sínu einhverja góða línu um öklana á Barböru, dóttur Kartlands slátrara í Fáfnismönnum, en þar vélaði Hjördís einnig um.

Voru engir fætur í Sirkus?

Blogger hristir hausinn og segir nnjzxx

12:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Varð bara að láta ykkur vita að ég fékk orðið aqvwa. Hvað sem það nú þýðir.

12:52 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Eitthvað eru menn að fikta við tærnar á mæðrum sínum í hinum óuppsetta verðandi saungleik Epli og eikur.

Það sem kemst næst fótaduld í Sirkus er líklega það að vér leyniþjónustumenn vorum í sérlega nánu sambandi við skóna okkar.

1:14 e.h.  
Blogger Ásta sagði...

Ég hef verið að reyna að hrista upp í minninu varðandi Sirkus og fætur í allan morgun en eitthvað stendur það á sér. Finnst það samt klingja einhverjum bjöllum. Hitt veit ég þó að ég tók sprettinn á hverri sýningunni á fætur annari með brotna tá og sennilega liggja einhverjar masókistískar ástæður þar að baki. En er varla svarið við spurningunni.

1:22 e.h.  
Blogger Gummi Erlings sagði...

Svo er alls ekki laust við ansi hreint jólalega fótaduld í nýjustu uppsetningunni.

Og orðið er "irjhpen". Sbr. finnsku: "Uksi irjhpen kolmelainen"

1:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

"saman með hnén Lína mín" =Hjördís Hjartardóttir sem húsmæðraskólastýran í Hvarfinu.
Fótaduldin birtist t.d. með brútal hætti í Fáfnismönnum þegar einn þeirra var gerður fætinum styttri, eða voru báðir kúttaðir af = bundnir upp?

3:41 e.h.  
Blogger Varríus sagði...

Og mórallinn: Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.

4:07 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Nú brestur minni mitt fullkomlega. Ég man bara að "minns", þ.e.a.s. Benedikt, sá fætur hennar stöðugt trítla fram hjá kjallaragluggunum á kránni. Gott ef hann sagði ekki e-s staðar "Þessir fætur!" en þó man ég það ekki alveg.

Eins og Hulda benti á missti Gísli félagi hans báða fætur af því hann var alltaf að detta í stigum – og enginn man það sennilega betur en Varríus sjálfur sem þurfti að reyra upp báða fætur, fyrst annan undir frakkann og hoppa um á hækju, síðan hinn og sitja ofan á þeim í hjólastólnum sínum.
Út frá sálgreiningu og bókmenntafræði og öðrum "undirstöðu"-dulda-fræðum mætti eflaust túlka það sem svo að undirmeðvitund Hugleiks hafi þar verið að reyna að losa sig við fótaduldina í eitt skipti fyrir öll.

Fyrsta setningin sem skrifuð var í það leikrit var einmitt svona:

Gísli (búinn að missa báða fætur): "Ég er hugsa um að selja hjólhestinn!"

Held að hún hafi svo verið tekin út á endanum.

4:11 e.h.  
Blogger Sigga Lára sagði...

Og í sama leikriti og Varrjuss þurfti að vera fyrst ein- og svo ófættur þurfti ég líka að vera einfætt. Og það var frumraun mín með Hugleik. Þannig að á þeim tíma virðist félagið hafa haft ófótafetish...

9:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Og meira að segja þurfturðu líka að vera fótalaus með stirtlu og sporð í sama leikriti. Þetta hefur verið á mjög háu stigi.

11:27 e.h.  
Blogger Ásta sagði...

Svo má færa rök fyrir því að rauðu, hnéháu stígvélin sem hún Alla sprangaði á í Sirkus hafi borið þessari blætishneigð klárlegt vitni.

10:30 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim