þriðjudagur, september 25, 2007

Frjálst Tíbet - sjálfstætt Taivan!

Þessi fyrirsögn mun því miður ekki hafa tilætluð áhrif. Samkvæmt þessum vef er Varríus bannaður í Kína. það sama gildir reyndar um vef Ljótu hálfvitanna og Sinfó. Allir vefir sem ég sýsla við eru taldir óhollir kínverskum netverjum.

Sennilega bara maklegt. Það er mín sannfæring að Kína sé stjórnað af drullusokkum. Og hafi verið lengi.

Það er í gangi einhver fáfengileg diskúsjón um hvort bók Jung Chang um Maó sé sanngjörn eða ósanngjörn. Ég las dóm um hana þegar hún kom út og það var augljós að hún var ónákvæmt hatursrit. En að halda að það sé ástæða til að hata ekki Maó er rökvilla. Samskonar rökvilla og afneitarar helfararinnar beita í krafti þess að einhver vitni um hana hafa fært í stílinn.

Ég nenni ekki að linka á diskúsjónina. Kíkið a Eyjuna og Silfur Egils þar. Þar eru linkar.

Jú annars. Ég varð bara að athuga hvort bloggsíða þessaMaóvinar væri á bannlistanum.

Og að sjálfsögðu var hún það! En Maó er dauður og kapítalfasistar ráða Kína. Sennilega er úthýsing Arnþórs enn ein sönnun þess að Maó var misskilinn mannvinur.

Verri rökvillur hafa verið gerðar í umræðunni.

4 Ummæli:

Blogger Einar Þór sagði...

Varðandi "the great firewall of china" þá hafa prófanir sýnt (og passar það alfarið við mína reynslu sem og þeirra sem til þekkja í kína) að þessi eldveggur er mestmegnis handahófskenndur.

Það er jú einhver slatti af vefsvæðum sem er í alvörunni bannaður, en þar fyrir utan eru ca. 20% líkur á að hvaða vefur sem er sé bannaður þann daginn.

3:22 e.h.  
Blogger Varríus sagði...

Fúlt. Og ég sem hélt ég væri andófsmaður :)

12:51 e.h.  
Blogger Siggadis sagði...

Ég held að blogspot yfirhöfuð sé bannaður... alltaf. Aðrir vefir koma og fara af bannlistanum og er tilviljunakennt. Mbl var einn daginn bannaður þegar við vorum úti, næsta dag ekki... held að þetta fari bara eftir því hvaða núðlur þeir gúffuðu í sig og í hvaða skapi þeir eru þann daginn, það er amk ekki eins og þeir skilji hvað fer fram á íslensku síðunum :/

1:20 e.h.  
Blogger Sigga Lára sagði...

Dúd! Þú gleymir aðalandófsefni þessarra dagana í fyrirsögn: Upp með Búrma! (Eða niður með Mýanmörsku múnkana, eftir hvar þú vilt vera.)

1:36 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim