miðvikudagur, febrúar 20, 2008

Um nauðsyn þess að taka til heima hjá sér

Gott framtak hjáBmorthens að halda stórtónleika gegn rasisma sem er ljótt mein. Tilhneigingin til að líta á fólk af erlendum uppruna sem annars flokks og eiginlega bara andlits- og nafnlausan massa er útbreidd og óhugguleg.

Það er því dálítið nöturlegt að sjá skýrt dæmi um þetta viðhorf í auglýsingu um þessa sömu tónleika. Þar eru listamenn taldir upp, alveg sérlega glæsilegt lænöpp verð ég að segja:

Nýdönsk, Mínus, Lay Low, Ragnheiður Gröndal, Hjálmar, Poetrix, Sout River Band, Raggi Bjarna, Buff, Ellen Kristjáns, Sprengjuhöllin, Fabúla - og hljómsveit frá PóllandiLeturbreyting Varríusar

Óheppni...

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

ái...
YMH

1:38 e.h.  
Blogger Gadfly sagði...

Ég er í þeirri irónísku aðstöðu að hagnast fjárhagslega á því sem ég er siðferðilega andsnúin, þ.e. rasisma. Ég hef nefnilega tekjur af innbrotakerfum og útlendingahræðslan skilar sér beint inn á bankareikninginn minn. Ég kann ekki alveg við að æpa "fleiri Litháa til landins". Rassgat.

3:29 e.h.  
Blogger Varríus sagði...

Öppdeit: Í þakkarauglýsingu tónleikanna daginn eftir var enn ekki komið nafn á hina pólsku gesti. Nema einhver hafi í alvörunni stofnað hljómsveit sem heitir "Hljómsveit frá Póllandi". Sem væri snilld.

Ef ekki þá þykir mér með smjörlíkindum að enginn annar en ég í bloggheimum hafi neitt við þetta að athuga.

3:20 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim