þriðjudagur, nóvember 27, 2007

Kontrabassaklarinett og falskt píanó

Ég ætla sosum ekki að leggja það í vana minn að plögga sinfótónleika hér á minni prívatsíðu, en nú get ég ekki bloggs bundist.

Tónleikarnir á fimmtudaginn verða rosalegir. Hæfileikabúntið Thomas Adés er frumlegt og frábært tónskáld og stjórnar tveimur verkum eftir sig, fiðlukonsertinum Concentric Paths og hinu ógurlega Asyla sem er einhverskonar sinfónía. Og svo tveimur verkum eftir sjálfan Ígor Stravinskíj. Annað þeirra er Sálmasinfónían sem er magnþrungið og dugar ekkert minna en báðir Hamrahlíðarkórarnir til að koma því skammlaust til skila.

Fyrir hljóðfæranördinn mig er þatta algert konfekt. Asyla er skrifuð fyrir vægast sagt sérviskulega samsetta hljómsveit. Fyrir utan hefðbundið dót eru þarna t.d. þrjú píanó, þar af eitt stillt kvarttóni of lágt, bassaflauta, bassaóbó og kontrabassaklarinett. Í slagverkinu gengur mikið á og m.a. lamið í poka fulla af hnífapörum og gongum dýft í vatn til að breyta tónhæðinni.

Já, og svo er þetta merkilega mögnuð mússík þrátt fyrir allt!

Allir í háskólabíó á fimmtudagskvöld með eyrun sperrt!

2 Ummæli:

Blogger Þorbjörn sagði...

Verð með eyrun sperrt á útvarpið. Verst að sjá ekki sjónarspilið sem er eflaust rúmlega hálf upplifunin í þetta skiptið.

1:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

ég er kolfallin fyrir Adés,
ég spái því að hann fái að semja tónlistina fyrir næstu Harry Potter mynd en það er auka atriði,
hann er bara flottur.

7:05 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim