Gott framtak hjáBmorthens að halda stórtónleika gegn rasisma sem er ljótt mein. Tilhneigingin til að líta á fólk af erlendum uppruna sem annars flokks og eiginlega bara andlits- og nafnlausan massa er útbreidd og óhugguleg.
Það er því dálítið nöturlegt að sjá skýrt dæmi um þetta viðhorf í auglýsingu um þessa sömu tónleika. Þar eru listamenn taldir upp, alveg sérlega glæsilegt lænöpp verð ég að segja:
Nýdönsk, Mínus, Lay Low, Ragnheiður Gröndal, Hjálmar, Poetrix, Sout River Band, Raggi Bjarna, Buff, Ellen Kristjáns, Sprengjuhöllin, Fabúla - og hljómsveit frá PóllandiLeturbreyting Varríusar
Óheppni...
ái...
SvaraEyðaYMH
Ég er í þeirri irónísku aðstöðu að hagnast fjárhagslega á því sem ég er siðferðilega andsnúin, þ.e. rasisma. Ég hef nefnilega tekjur af innbrotakerfum og útlendingahræðslan skilar sér beint inn á bankareikninginn minn. Ég kann ekki alveg við að æpa "fleiri Litháa til landins". Rassgat.
SvaraEyðaÖppdeit: Í þakkarauglýsingu tónleikanna daginn eftir var enn ekki komið nafn á hina pólsku gesti. Nema einhver hafi í alvörunni stofnað hljómsveit sem heitir "Hljómsveit frá Póllandi". Sem væri snilld.
SvaraEyðaEf ekki þá þykir mér með smjörlíkindum að enginn annar en ég í bloggheimum hafi neitt við þetta að athuga.