Dreymdi í nótt að ég væri að tromma á tónleikum með Rolling Stones.
Þegar þeim lauk, með æsilegum flutningi á Satisfaction þar sem við Keith grúvuðum ógurlega, pakkaði ég saman og hélt beint niður á Grandrokk þar sem Hálfvitarnir voru að stilla upp fyrir konsert.
Nú verða tónleikar með hálfvitunum á Grandrokk á laugardaginn. Annar hluti draumsins rætist sumsé.
Þýðir það að ég eigi að stúta Charlie Watts?
Engin ummæli:
Skrifa ummæli