Sjálfur fer Varríus á Eldhús eftir máli í kveld í gagnrýnendakápu sinni.
Annars er þetta helst í fréttum:
Það er ekki oft sem mann langar að geta fylgst með rússnesku sjónvarpi, en þetta væri ég til í að sjá.
Og þó Hraun! hafi jólað skemmtilega á Rósenberg þá hefði ég verið til í að skipta á því jólagiggi og þessu – No offense strákar.
Og áramótagetraunin. Hver sagði þetta:
We began as a group not being able to play that well but having great ideas, and a badly played song with great ideas is better than a well played song with no ideas. That's punk rock.Svarið er í þessari stórfínu grein.
Og fyrir þá sem fóru í ljóðaköttinn þessi jólin: hér fáiði fylli ykkar og vel það.
Áramótayfirlit er í smíðum - verður birt á morgun.
Spurningin er hvenær McGowan verði sparkað aftur. Og hvort hann reisi þá við hljómsveitina The Popes. Sá þá einmitt spila á Hróarskeldu 95, MacGowan alveg á skallanum, en bretarnir í hópnum höfðu á orði að hann væri óvenju alsgáður. Og Blogger vitnar líklega í einhvern enn óskrifaðan Pogues texta: "merydolv"
SvaraEyðaShane er náttúrulega eitt besta dæmi heimsins um „alcohol based lifeform“. Og ólíkt flestum fer það honum það vel. Sennilega er hann samt algjörlega óþolandi að vinna með og Finer og félagar gefast örugglega upp á honum þegar hann byrjar aftur að láta henda sér út úr flugvélum tónleikaferðalögum (fyrir flugtak) sökum drykkjuláta. En þá er nú líka sjálfhætt fyrir hina. Kannski að þeir stofni þá kyuchxr í staðinn.
SvaraEyðahurru manni, hvernig stendur á því að linkasafn yðar hverfur eins og dögg fyrir sólu þegar síðan hefur klárað að hlaða sig inn? þetta er hið allt hið hvimleiðasta, ég er bara öldungis oolwsvt yfir þessu..?
SvaraEyðaDularfullt... hef ekki orðið þessa var og kann engar skýringar.
SvaraEyðaÉg sé linkasafnið - en hins vegar hefur það fært sig neðst á síðuna sem getur varla kallast góð hönnun. Eitthvað hefur farið úrskeiðis í templteitum.
SvaraEyðaKemur alveg eðlilega út hjá mér. Enda með Firefox. Hættið að nota IExplorer, það bara eitthvað svo last century :)
SvaraEyðaÞað er rétt - Firefox ræður við síðuna Hvað er að því þótt maður noti bæði? Ég hef sjaldan verið sökuð um að vera sérstaklega hipp og kúl :þ
SvaraEyðaÞorgeir. Ég sem raddformaður V.V.H.R, mun að sjálfsögðu koma þann 6. janúar til RVK og verð til taks fram til jan. Mætti ég uhdbzhu heita ef ég ekki mætti!!
SvaraEyðaKúl!
SvaraEyðaOg ef þú kemur tímanlega þann 6. þá nærðu aukasýningu á Jólaævintýrinu!
Shane er nú ekkert endlega sammála þeim hinum um að það sé hann sem sé með vandræðin, heldur því fram að hinir séu ósanngjarnir bara. Ég held að það sé rétt sko og ég skil ekki að menn séu að kalla hann drykkjumann, hafiði séð Ragga rauða?
SvaraEyðaToggi, ég held að vandamálið með IE er að jólaævintýrismyndin á hliðarreininni er aðeins of breið. Ég lenti í þessu sama einhvern tímann með síðuna mína, IE bregst þannig við að demba allri hliðarreininni neðst. Þú getur prófað að minnka myndina aðeins, þá ætti þetta að lagast. Hliðarreinin er 220px á breidd, svo myndin verður að vera aðeins minni en það.
SvaraEyðafái einhver þennan eldref til að virka í tölvunni minni og ég skal glöð skipta yfir. við hann ríkja meiri samskiptaorðugleikar en ie og hefur microsoft ´því vinninginn þar til eldrefur virkar. *fnæs*
SvaraEyðaGetur líka prófað Opera. Í raun ekkert síðri en Firefox, ef út í það er farið. Og "íslenskur" þar að auki.
SvaraEyðaAllt kemur þetta heim og saman við mína reynslu. Linkasabbnið sökk til botns á IE þegar jólamyndin kom, en allt eins og blómstrið eina í Eldref.
SvaraEyða